fbpx

Næstu námskeið

Á vorönn 2026 verður boðið upp á tvö námskeið

Staðnámskeið 10. febrúar til 26. mars 

Kynningarfundur og opnun námskeiðsins verður þriðjudaginn 10. febrúar kl. 11:30-12:00Dagsetningar verklegra tíma eru: 

  • þriðjudagurinn 24. febrúar frá kl. 9:00-13:00
  • fimmtudagurinn, 5. mars frá 9:00-13:00 
  • þriðjudagurinn 17. mars frá 9:00-13:00.  

Námskeiðinu lýkur með munnlegu prófi á Zoom sem haldið verður fimmtudaginn 26. mars.

Fyrirkomulag kennslunnar er annars vegar í formi fyrirlestra á kennsluvef sem nemendur horfa á áður en mætt er í verklega tíma (frá 10. febrúar til 24. febrúar) og annars vegar í formi verklegra æfinga. Námskeiðið verður kennt í staðkennslu á höfuðborgarsvæðinu (nánari staðsetning auglýst síðar) og er skyldumæting í a.m.k. 2 af 3 tímum til að klára námskeiðið.  Ekki verður í boði að taka þátt í verklegum tímum í gegnum fjarfundabúnað (sjá þá frekar næsta fjarnámskeið). 

Námskeiðið kostar 150,000 kr. og er sæti á námskeiðinu einungis staðfest þegar greitt hefur verið staðfestingargjald sem er 50,000 kr. sem gengur upp í námskeiðsgjaldið. Staðfestargjald er óafturkræft og flyst ekki á milli námskeiða. Kennslubók er innifalin í námskeiðsgjaldi. 

Athugið að einungis verða í boði 7 sæti á námskeiðið að þessu sinni, fyrstur kemur fyrstur fær. 

Kynningarfundur og opnun námskeiðsins verður þriðjudaginn 24. febrúar kl. 11:30-12:00Dagsetningar verklegra tíma eru: 

  • þriðjudagurinn 14. apríl frá kl. 9:00-13:00
  • miðvikudagurinn 22. apríl frá 9:00-13:00
  • þriðjudagurinn 5. maí frá 9:00-13:00.  

Námskeiðinu lýkur með munnlegu prófi á Zoom sem haldið verður miðvikudaginn 13. maí. Fyrirkomulag kennslunnar er annars vegar í formi fyrirlestra á kennsluvef sem nemendur horfa á áður en verklegir tímar fara fram (þ.e. frá því námskeiðið opnar þann 24. mars og fram til 14. apríl). Námskeiðið verður kennt í gegnum Zoom og er skyldumæting í a.m.k. 2 af 3 tímum til að klára námskeiðið. 